Archive for júní, 2010

Fortíð – Tónleikar

föstudagur, júní 25th, 2010

Fortíð - Poster

Fortíð - Poster

Fortíð – Tónleikaröð um þar næstu helgi

Föstudaginn 2. júlí verða tónleikar á Venue – Tryggvagötu 22.
Tónleikarnir byrja klukkan 22:00 og munu hljómsveitirnar:
Carpe Noctem, Forgarður Helvítis og Wistaria spila.
Miðaverð er 1.500,- kr. og aldurstakmark 18 ára.

Laugardaginn 3. júlí verða síðan tónleikar í Hellinum, TÞM – Hólmaslóð 2,
með Atrum, Pissanthrope og Chao…
Byrjar kl: 20:00, aldurstakmark ekkert og 1.500,- kr. inn.

Posted in Hellirinn | Engin Ummæli »

Dagskráin í Dag

laugardagur, júní 19th, 2010

Húsið er opið og grillið er heitt fyrir utan… mætið og sýnið stuðning! :)

Tónleikarnir hafa verið færðir inn í húsið og munu hljómsveitirnar koma fram í þessari röð:

Feldberg 17:00
Nolo 17:30
Elín ey 18:00
Sudden weather change 18:30
Móri 19:00
Þórir 19:30
Marlon og Beatur 20:00
Futuregrapher 20:30
Biogen 21:00
Quadruplos 22:00
Dark harvest 22:30
Momentum 23:00

Posted in TÞM | Engin Ummæli »

Baráttu-Mótmælatónleikar

fimmtudagur, júní 17th, 2010

Baráttu-tónleikar á Sódóma kl: 22:00 – 03:00
Föstudagurinn 18. júní – 20 ára aldurstakmark – 1.000,- kr

DJ Vector – Sykur
Quadruplos – Gus Gus

Baráttu-tónleikar í TÞM (út á Granda)
Hólmaslóð 2 kl: 17:00 – 22:00
Laugardagurinn 19. júní – Ókeypis aðgangur – ekkert aldurstakmark
Opið hús ;)

Grill veisla, söluborð, tónlist etc.

Fram koma:
Feldberg  Lay Low  Legend Futuregrapher
Biogen  Quadruplos  Momentum  Dark Harvest
Nolo  Marlon Pollock og Beatur  Mori  DLXATX

Posted in TÞM | Engin Ummæli »

Opinbert bréf til Hljómsveita

fimmtudagur, júní 17th, 2010

Nú er komið að því að berjast fyrir því sem við stöndum fyrir og okkur er kært. Eins og við flest í bransanum vitum er Tónlistarþróumarmiðstöðin í endalausri baráttu við það eina að halda lífi. Er ekki kominn tími til að segja hingað og ekki lengra? Við eigum rétt á því, eins og öll önnur lönd í kringum okkur, að hafa miðstöð sem þessa. Borgin styrkir íþróttafélög með hundruðum milljóna á ári en telur sig ekki eiga aur fyrir tónlistafólkið. Þetta tel ég vera misréttindi og ekkert annað!

Þannig að félagsmenn TÞM, hvetjið alla til að mæta á mótmælatónleika laugardaginn 19. Júni þar sem ótalmargir tónlistarmenn munu koma fram og berjast með okkur. Tónleikarnir verða á bílastæðinu fyrir framan TÞM við Hólmaslóð 2 og standa frá 15:00 – 22:00. Látið orðið ganga og komið með sem flesta með ykkur. Við erum að tala um réttindin okkar til að skapa og vera til!

Posted in TÞM | Engin Ummæli »

200 ungir tónlistarmenn á götuna í júlí ef TÞM lokar

laugardagur, júní 12th, 2010

Fréttablaðið 12. júní

Daniel Pollock: “Borgin styrki TÞM eins og aðrar tómstundir”

Fréttablaðið 12. júní

Fréttablaðið 12. júní

„Við gerðum allt rétt, en erum samt í djúpum skít,” segir Danni Pollock, forsprakki TÞM.

Tónlistarþróunarmiðstöðinni (TÞM) verður lokað 1. júlí ef hún nær ekki að fjármagna húsaleigu ársins. 12 milljónir kostar að leigja húsnæði TÞM úti á Granda á ári og Reykjavíkurborg greiðir helminginn af því.

Landsbankinn styrkti starfsemina um hinar sex milljónirnar áður en bankinn féll í október árið 2008, en nú er svo komið að bæði sýslumaður og síðar héraðsdómur hafa úrskurðað að starfsemin verður borin út í sumar.

„Félagsmenn hafa byggt TÞM upp frá 2002 og heildarupphæð sem hefur verið lögð í starfsemina er í kringum 140 milljónir,” segir Danni. „Um 90 milljónir eru beint frá krökkunum sjálfum. Borgin er að reyna að spara sex milljónir með því að henda 140 milljónum.”

Danni furðar sig á því að þurfa styrki frá einkaaðilum til að reka TÞM, enda sé peningum dælt í íþróttir og aðrar tómstundir. Þá bendir hann á að hin Norðurlöndin verji háum fjárhæðum í starfsemi á borð við þessa. „Það er einfaldlega vegna þess að þau skilja þetta,” segir hann. „TÞM hefur mikið forvarnargildi og er mikil bót fyrir samfélagið.”

Danni vill fá Reykjavík inn í reksturinn af fullum krafti og að borgin semji við eigendur hússins. Nýr meirihluti Besta flokksins og Samfylkingarinnar tekur við stjórnartaumum í Reykjavík á þriðjudag og því getur ný borgarstjórn ekki tekið afstöðu til málsins fyrr en þá.
Einar Örn Benediktsson, borgarfulltrúi Besta flokksins, segist þó alltaf hafa haldið með TÞM.

„Ég hef stutt TÞM í gegnum árin,” segir hann. „Ég og Danni höfum oft talað um TÞM. Sem dæmi þá æfði Björk fyrir Volta-túrinn þarna inni þannig að þetta húsnæði er alveg bráðnauðsynlegt.Í stuttu máli, þá er æskilegt að TÞM haldi lífi.”

Smelltu hér til að lesa greinina á visir.is

Posted in TÞM | Engin Ummæli »

“Ramming Speed” – Tónleikar um helgina

föstudagur, júní 11th, 2010

Poster - Ramming Speed

Poster - Ramming Speed

Á föstudaginn 11. júni eru tónleikar á Dillon með hljómsveitunum Celstine og Manslaughter og hefjast þeir klukkan 22:00 – 20 ára aldurstakmark.

Á laugardaginn munu síðan Logn, Gone Postal og World Narcosis troða upp í Hellinum og hefjast herlegheitin klukkan 20.

Ekkert aldurstakmark eins og alltaf í hellinum, en á báða tónleikana kostar litlar 1000,- kr.

- Njótið helgarinnar!

…Full size poster hér

Posted in Hellirinn | Engin Ummæli »