Upplýsingar / Reglur
Afnotagjöldin eru 26.000 á mánuði. auk þess, 26.000 kr tryggingu sem endurgreiðist við uppsögn samnings, þ.e. þegar þið flytjið út. það eru 3 hljómsveitir saman í 40 fm rými með 3.2 metra lofthæð, tvöföldum veggjum og hljóðeinangruðum hurðum.
Opnunartími okkar er frá 18:00 til miðnættis, og frá 14:00 til miðnættis um helgar, en hægt er að semja um annað. Fyrirkomulagið á æfingartímanum er eftirfarandi:
Í hverju herbergi er dagatal sem hljómsveitir skrifa sig inn á, t.d. eftir eina æfingu ákveðið þið að taka æfingu á þrið. og fimmtud. kvöld. þá skrifið þið ykkur inn. sum rými eru með fast fyrirkomulag, hljómsveit X æfir á mán, mið og fös á meðan hljomsveit Y æfir sun-þri-fimt.
Samkvæmt húsreglum þá er það regla númer 1 að það er bannað að snerta annara manna dót og veldur það tafarlausum brottrekstri (miðað við aðstæður hverju sinni) úr húsinu og trygging gerð upptæk.
Við erum ávalt með vaktmann í húsinu, þ.e. starfsfólk öryggisverðir sem opna og loka öllum rýmum. Er þetta mikið öryggisatriði og býður enginn annar upp á þessa þjónustu. Auk þess erum við með öflugt þjófa- og brunavarnakerfi, myndavélar um allt hús, etc. við erum mjög strangir á öryggisatriðunum.
Afnotagjöld
Afnotagjöldin eru þau gjöld sem þig greiðið í hverjum mánuði með greiðsluseðill fyrir afnot af æfingaplássi. Okkur langar til gagns og gamans að útskýra hvað felst í þessum afnotagjöldum.
- Afnot af æfingaplássi sem ykkur hefur verið úthlutað, samkvæmt opnunartíma eða eftir samkomulagi. Þó að við bindum fasta viðveru vaktmanna við opnunartíma þá er alltaf hægt að hringja í (824-3001) eða (824-3002) og semja um annað. Gróflega reiknað hefur hver hljómsveit í æfingarými 100 klst á mánuði til æfinga (skv. opnunartíma).
- Vöktun á húsnæði. Eins og þið hafið eflaust tekið eftir þá erum við með vaktmann á opnunartíma sem sér um að hleypa inn í rými, þrif og almenna öryggisgæslu. Vaktmaður leysir líka úr ýmislegum atriðum sem upp geta komið, aðstoðar ykkur með tækin ykkar ef eitthvað er að o.s.frv.
- Öryggiskerfi / myndavélakerfi. Við erum með öflugt öryggiskerfi beintengt stjórnstöð Öryggismiðstöðvar Íslands. Þar að auki vaktmannin.
- Hvíldaraðstaða. Í húsinu er kaffiaðstana, setstofa.
- Tónleikasalur. Við höfum nú yfir að búa glæsilegum tónleikasal sem hlotið hefur nafnið Hellirinn. Þar er að finna öflugt hljóðkerfi, stórt og gott svið og öll aðstaða til tónleikahalds eins og hún gerist best. Félagsmenn hafa afnot af honum til tónleikahalds og þessháttar. Félagsmenn ganga alltaf fyrir með afnot af þessari aðstöðu, eins og annari.
- Stúdíó.
- Sjoppa. Nú hefur lítil sjoppa opnað í húsinu og ætti hún að sinna að mestu sykur- og orkuþörf félagsmanna. Auk sælgætis og gosdrykkja verður hægt að kaupa sér gítar- og bassastrengi, trommukjuða, gítarneglur tæki og tól magnara-snúnrur, hljóðfæri og þessháttar. Vaktmenn sjá um að afgreiða.




