Tónlistarþróunarmiðstöðin

“TÞM er 1500 fermetra tómstundarhúsnæði sem sinnir öllu því er viðkemur tónlist, þ.e. æfingum, lifandi flutningi, upptökum, tæknimálum, upplýsingum o.s.frv.”

Hugmyndin

Hugmyndin að baki Tónlistarþróunarmiðstöðvarinnar er að búa til mannsæmandi aðstöðu fyrir þennan helsta vaxtarbrodd íslenskrar sköpunar, bæði fyrir faglistamenn og upprennandi áhugafólk.

Aðstaðan er ekki einvörðungu hugsuð út frá þörfum tónlistarfólks, því annað listafólk á að auki að geta leigt aðstöðu undir starfsemi sína í miðstöðinni.

Það er sannað mál að allar listgreinar renna meira og minna saman og tónlistargeirinn snýst ekki bara um að búa til tónlist.

Aðrar listir og störf sem koma við sögu eru t.d. kvikmyndagerð, myndbandagerð, hljóðupptökur, hljóðstjórn á tónleikum, grafisk hönnun, vefsíðugerð, fatahönnun og jafnvel tísksýningarstörf o.s.frv…

Æfingarrými

Við höfum aðstöðu fyrir 48 hljómsveitir með vöktun, eftirliti, þrifum, öryggiskerfi, osfrv. 3 hljómsveitir samnýta 40 fermetra rými. Æfingatímar eru skipulagðir á dagatali til að tryggja sem besta nýtingu. Rýmin eru afar vel úr garði gerð, tvöfaldir veggir og hljóðeinangraðar eldvarnarhurðir. Önnur aðstaða, eins og kaffi- og hvíldaraðstaða er til fyrirmyndar og lítil sjoppa þjónar félagsmönnum og þeirra nauðsynlegustu orkuþörf.

Stakar/Tímabundnar æfingar

Einnig getum við útvegað æfingarrými til skemmri tíma fyrir tímabundin verkefni og stakar æfingar. Margir tónlistarmenn vinna að tímabundnum verkefnum og hafa ekki þörf fyrir fasta aðstöðu í TÞM. Þeim bjóðum við upp á þann möguleika að fá aðstöðu undir stakar æfingar eða tímabundin verkefni. Sú aðstaða kemur með öllu nauðsynlegu, eins og öflugu hljóðkerfi, trommusetti og í raun bara því sem óskað er eftir. Allar séróskir leystar vandræðalaust.

Tónleikasalur – Hellirinn

“Höfum yfir að búa fjölnotasal með sviði og hljóðkerfi. Rúmar 200-250 manns.”

Tónleikasalurinn Hellirinn er algjör nýbreytni, enda er hann eini staðurinn í Reykjavík þar sem allir aldurshópar geta komið og sett upp eða horft á tónleika. Mikil vöntun hefur verið á slíkum stað, enda gríðarmikill tónlistaráhugi í gangi hjá þeim aldurshóp sem hefur ekki aldur til að sækja bari og klúbba. Einnig fer þeim ört fjölgandi sem kjósa að sækja ekki tónleika á vínveitingastöðum og trúa því að tónlist og áfengi fara ekkert endilega saman. Salurinn hentar líka vel undir dans-, leikfimis-, sviðs-æfingar ýmiskonar og í raun alla þá viðburði sem krefjast slíks rýmis.