Bloodgroup
It’s time to rock off your socks!
Tónlistarstefna: Electronic Pop/Rock / Alternative
Útgáfufyrirtæki: Record Records (Ísland)
Hljómsveitarskipan:
- Lilja – Söngur
- Janus
- Raggi
- Hallur
Hlekkir: Facebook, Myspace, Twitter, Gogoyoko
Útgefið Efni:
“Dry Land”
[LP] CD/mp3. Record Records – 2. Desember 2009. 11 Lög [XX:XX]
“My Arms”
[Single] CD/mp3. Record Records – 16. Október 2009. 1 Lag [04:11]
“Sticky Situation”
[LP] CD/mp3. Síld ehf. – 5. Nóvember 2007. 11 Lög [XX:XX]
Hafa Samband: Hallur Jónsson – hallurjonsson@gmail.com
Saga Bandsins: Bloodgroup was formed in 2006 by Halez, Lilja, Raggi and Janus during some chilly winter days on the east coast of Iceland. After a few months of writing noticiable and catchy electronic dance pop, the group played at Iceland Airwaves festival. They recieved praise for a great live show, along with their terrific melodies and beats that seemed to get even the harshest metalheads to do the dance. The group evolved and got even better each time the went on stage, and are now considered one of the best live acts in Icelandic music.
After raising attention in Iceland and outside it, the group finished their first album titled ,,Sticky Situation“, released by their own label, Sild ehf. Sticky Situation has gotten excellent reviews as the bands debut, and has among other things been called ,,one of the best albums of the year“ in Iceland by several critics.
After the release of the album (November 2007), Bloodgroup has been busy playing both in Iceland and other countries, promoting the album with great success. They were joined by the amazingly talented DJ Benni B-Ruff in the middle of 2007, and he brought even more heat to an already sizzling show. Now it´s time for Bloodgroup to rock off your socks!
Umfjöllun:
Blóðflokkur A+ | 4/5 Stjörnur
Í Bloodgroup eru systkinin Lilja, Hallur og Ragnar Jónsbörn, sem ólust upp á Egilsstöðum, og Færeyingurinn Janus Rasmussen. Þau hafa harkað af ástríðu í tölvupoppinu undanfarin ár og mæta nú með plötu númer tvö, Dry Land.
Það er auðheyrt frá fyrstu tónum plötunnar að nú dregur til tíðinda. Fífldjarft stuðið á fyrstu plötunni Sticky Situations hefur verið dempað til mikilla muna. Hér er rólegra yfir, dekkra, alvarlegra og mun almennari sval- heit í gangi. Mér finnst þetta frábær skipti því galsaskapur fyrstu plötunnar höfðaði ekkert sérstaklega til mín og varð ansi fljótt leiðigjarn. Hann var sem saminn inn í fyrirliggjandi mót frá svipuðum skoppandi neonlitum hljóðgervlasveitum. Nú er bandið sloppið úr mótinu og fer sínar eigin leiðir. Ég á von á að þessi plata verði lífseigari, enda vinnur hún hægt og bítandi á og er stórgóð þegar hún hefur verið melt.
Hljóðgervla- og trommuheilaknúið rosapopp nær hér áður óþekktum hæðum á Íslandi. Þykkar og djúsí mottur frábærlega samansettra takta og gervla eru kryddaðar stöku sinnum með strengjum í útsetningum Ólafs Arnalds. Janus, sem áður var aðallega í því að reka upp stuðhvetjandi gól, er nú farinn að syngja annað hvert lag á móti Lilju, og bæði standa sig vel.
Svalt undirspil og góður söngur myndi auðvitað litlu máli skipta ef melódíurnar væru eitthvert krapp. Sem betur fer eru þær mjög góðar og útpældar. Tónlistin minnir á Human League á köflum, bæði á tímabilið þegar Human League var vinsælt poppband og líka á fyrra tímabil sveitar- innar þegar bandið var þungt og alvarlegt. Þetta er tónlist til að kinka kolli við á reykmettuðum bar árið 2020 og það eru auðvitað vélmenni á barnum sem bera fram drykkina.
Og hér koma svo stóru orðin: Að mínu mati skara tvær íslenskar plötur fram úr á ágætu útgáfuári og fá fullan skammt af stjörnum. Terminal með Hjaltalín og þessi frábæra plata með Bloodgroup. Bravó!
- Dr. Gunni (Fréttablaðið, 8. desember 2009)



