Quadruplos

A Diamond in The Ruff

Quadruplos

Quadruplos

Tónlistarstefna: Experimental / IDM / Electro

Útgáfufyrirtæki: Brak / Kimi

Hljómsveitarskipan:

  • Magnús Birkir Skarphéðinsson “Magnoose”
  • Tómas Þórarinn Magnússon “Tomio Newmilk”

Hlekkir: Myspace, Facebook, quadruplos.tumblr.com

Útgefið efni:

“Quadruplos”
[LP] CD/mp3. Brak Records – 28. Apríl 2010. 8 Lög [XX:XX]

Hafa Samband: quadruplos@gmail.com

Saga Bandsins: Quadruplos is a band of two equally adventurous mad scientists. As musicians, noisemaker and visual artist they colour the world with eccentric sounds and visuals, making audiences shake their behinds and rattle their heads. From slow and heavy beats with gut-wrenching bass to high tempo and huge kickdrums with squelching filters they will blow your brains out!

Umfjöllun:

Quadruplos – Töff Tryllingur – 4/5 stjörnur

Hljómsveitin Quadruplos er skipuð þeim Magnúsi Birki Skarphéðinssyni og Tómasi Þórarni Magnússyni. Magnús var m.a. í Mr. Silla & Mongoose og hefur búið til tónlist undir nafninu Magnoose, en Tómas hefur notað aukasjálfið Tomio Newmilk.

Hljómsveitin varð til fyrir nokkrum árum en lá í dvala þar til í haust að hún var endurvakin fyrir tónleika á Iceland Airwaves. Síðan hafa þeir Magnús og Tómas verið iðnir við kolann. Þeir áttu frábært lag á Weirdcore-safnplötunni sem kom út í desember síðastliðinn og nú hafa þeir sent frá sér sína fyrstu plötu samnefnda sveitinni. Hún er átta laga og kemur út í samstarfi Weirdcore og Brak Records.

Tónlist Quadruplos er hörð og kraftmikil teknótónlist. Það má greina áhrif í henni frá listamönnum eins og Aphex Twin eða hinum íslenska Biogen og í raun taka þeir félagar það sem þeim hentar úr danstónlist síðustu ára hvort sem það er teknó, breakbeat eða drum & bass og blanda því við sitt eigið og útkoman er fersk og orkurík. Þeir hafa mjög sterka tilfinningu fyrir framvindu og dýnamík og byggja lögin flott upp með stíganda og sviptingum á milli lágværari og rólegri kafla og háværari og ómstríðari kafla. Flest lögin ná hámarki í brjáluðum tryllingi. Þetta er auðvitað ekta klúbbatónlist, en hún virkar líka vel heima í stofu eða í bílnum. Bara muna að spila hátt!

Á heildina litið er þetta frábær plata. Áhugamenn um raftónlist ættu að tékka á henni, en líka allir sem hafa gaman af hávaða og tryllingi. Það er miklu meira rokk í Quadruplos heldur en flestum gítarsveitum í dag.

Niðurstaða: Flottur hljómur, dýnamík og tryllingur einkenna þessa fyrstu plötu Quadruplos.

- Trausti Júlíusson (Fréttablaðið – 25. maí 2010)

Spreningar á Tónleikum

Tvíeykið Quadruplos samanstendur af þeim Magnúsi Skarphéðinssyni og Tómasi Magnússyni og leika harkalegt klúbbateknó. Hljómsveitin var stofnuð fyrst fyrir þremur árum, en eftir tvenna tónleika tók hún sér hlé um nokkurt skeið, allt þar til hún var endurvakin fyrir Airwaves-tónlistarhátíðina.

„Þetta er mjög hávær danstónlist og við notum mikið heimatilbúin hljóðfæri sem búin eru til úr barnaleikföngum,“ útskýrir Magnús.

Á tónleikum blandar Quadruplos saman tónlist og sjónlist svo úr verður nokkurs konar gjörningur, en Magnús útskrifaðist úr Myndlistar- deild Listaháskóla Íslands árið 2008. Hann segist hafa grúskað lengi í tón- list, allt frá því að hann hóf að þeyta skífum á skólaböllum sem unglingur. Síðan þá hefur hann meðal annars spilað með norskri þungarokkshljómsveit og verið annar tveggja meðlima í Mr. Silla og Mongoose. „Fyrst það er búið að endurvekja Quadruplos ætlum við að reyna að vera duglegir í spilamennskunni auk þess að semja meira efni. Þessu verður svo öllu haldið saman með vídeóum, eldvörpum og sprengingum. Þetta er nefnilega mjög gauraleg tónlist,“ segir Magnús að lokum.

-sm (Fréttablaðið – 29. október 2009)