Færslur úr ‘TÞM’
fimmtudagur, janúar 26th, 2012
|
Mikil veisla verður í TÞM(Tónlistarþrónarmiðstöðin) þann 10. febrúar þar sem Angist, Blood Feud
og Ophidian I ætla að trylla mannskapinn með trufluðu þungarokki.
|

10. febrúar, ekki láta þig vanta
Posted in TÞM | Engin Ummæli »
þriðjudagur, janúar 3rd, 2012
Gleðilegt nýtt ár og kærar þakkir fyrir góðar stundir á liðnu ári. Völva TÞM spáir því að þetta verði ár tónlistar og sköpunar!
Við ætlum að opna tóneikaárið með headbangin’ metaltónleikum 6. jan fram koma:
Wistaria - http://www.facebook.com/wistariaice
Moldun - http://www.facebook.com/Moldun
I Need Pills To Sleep - http://www.facebook.com/pages/I-Need-Pills-To-Sleep/149427515159822
Tónleikarnir eru fyrir alla aldurshópa og kostar 1000 kr. inn. Húsið opnar kl 19:30 og tónleikarnir hefjast 20:15
Allir að mæta og slamma inn 2012
Posted in Hellirinn, TÞM | Engin Ummæli »
mánudagur, desember 26th, 2011

Screamo í TÞM
Miðvikudaginn 28. desember verða haldnir tribute tileinkaðir Avenged Sevenfold og The Rev.
Ekkert aldurtakmark
500kr inn.
Kíkið á facebook event’ið fyrir frekari upplýsingar
http://www.facebook.com/events/144006872375240/
Komum og öskrum árið í burtu!
Posted in TÞM | Engin Ummæli »
mánudagur, október 17th, 2011

Tónlistarþróunarmiðstöðin
Reykjavíkurborg og TÞM hefur gert samning um styrk. Þetta Þýðir að TÞM er komið til að vera. Kynnið ykkur starfsemina og möguleikana sem eru í boði í húsnæði okkar að Hólmaslóð 2 í Reykjavík.
Posted in TÞM | Engin Ummæli »
laugardagur, apríl 16th, 2011
Í ljósi þess að bensínverð er sífellt hækkandi og þjónustustig strætó fer minnkandi, hefur verið tekin sú ákvörðun að lækka afnotagjöldin í 21þús á mánuði :)
Posted in TÞM | Engin Ummæli »
fimmtudagur, mars 10th, 2011

Músiktilraunir 2011
Músíktilraunir 2011 nálgast óðum og er undirbúningur kominn á fullt. Að þessu sinni fagna Tilraunirnar þrítugasta starfsári sínu en fyrsta undanúrslitakvöldið var 18. nóvember 1982 í Tónabæ. Meðal hljómsveita sem hafa sigrað í gegnum tíðina eru m.a Dúkkulísurnar (1983), Greifarnir (1986), Kolrassa Krókríðandi (Bellatrix)(1992), Maus (1994), Botnleðja(1995), Stjörnukisi (1996), Mínus(1999), Rotweiler hundarnir(2000), Agent Fresco (2008) og í fyrra voru það Of Monsters and Men.
Músíktilraunir 2011 verða, eins og fyrri tilraunir, skemmtileg tónlistarhátíð sem stendur yfir í 5 daga, undankvöldin eru fjögur, 25 – 29. mars í Tjarnarbíói og úrslitakvöldið 2. apríl í Íslensku Óperunni.
Þetta er frábært tækifæri og ógleymanleg reynsla fyrir alla unga tónlistarmenn
Skráning er í fullum gangi á www.musiktilraunir.is og lýkur sunnudaginn 13.mars
Posted in TÞM | Engin Ummæli »