Færslur úr ‘TÞM’

Avenged Sevenfold/The Rev tribute í TÞM!

mánudagur, desember 26th, 2011

Screamo í TÞM

Miðvikudaginn 28. desember verða haldnir tribute tileinkaðir Avenged Sevenfold og The Rev.

Ekkert aldurtakmark

500kr inn.

 

Kíkið á facebook event’ið fyrir frekari upplýsingar
http://www.facebook.com/events/144006872375240/

 

Komum og öskrum árið í burtu!

Posted in TÞM | Engin Ummæli »

TÞM komið til að vera!

mánudagur, október 17th, 2011

Tónlistarþróunarmiðstöðin

Reykjavíkurborg og TÞM hefur gert samning um styrk. Þetta Þýðir að TÞM er komið til að vera. Kynnið ykkur starfsemina og möguleikana sem eru í boði í húsnæði okkar að Hólmaslóð 2 í Reykjavík.

Posted in TÞM | Engin Ummæli »

Æfingaraðstaða – Vortilboð!

laugardagur, apríl 16th, 2011

Í ljósi þess að bensínverð er sífellt hækkandi og þjónustustig strætó fer minnkandi, hefur verið tekin sú ákvörðun að lækka afnotagjöldin í 21þús á mánuði :)

Posted in TÞM | Engin Ummæli »

Músiktilraunir 2011 – Skráning

fimmtudagur, mars 10th, 2011

Músiktilraunir 2011

Músiktilraunir 2011

Músíktilraunir 2011 nálgast óðum og er undirbúningur kominn á fullt. Að þessu sinni fagna Tilraunirnar þrítugasta starfsári sínu en fyrsta undanúrslitakvöldið var 18. nóvember 1982 í Tónabæ. Meðal hljómsveita sem hafa sigrað í gegnum tíðina eru m.a Dúkkulísurnar (1983), Greifarnir (1986), Kolrassa Krókríðandi (Bellatrix)(1992), Maus (1994), Botnleðja(1995), Stjörnukisi (1996), Mínus(1999), Rotweiler hundarnir(2000), Agent Fresco (2008) og í fyrra voru það Of Monsters and Men.

Músíktilraunir 2011 verða, eins og fyrri tilraunir, skemmtileg tónlistarhátíð sem stendur yfir í 5 daga, undankvöldin eru fjögur, 25 – 29. mars í Tjarnarbíói og úrslitakvöldið 2. apríl í Íslensku Óperunni.

Þetta er frábært tækifæri og ógleymanleg reynsla fyrir alla unga tónlistarmenn

Skráning er í fullum gangi á www.musiktilraunir.is og lýkur sunnudaginn 13.mars

Posted in TÞM | Engin Ummæli »

Gítarsmiður í TÞM

fimmtudagur, júlí 29th, 2010

Þessa stundina stendur yfir uppsetning á vinnustofu Stinna gítarsmiðs sem mun opna shop’ið sitt fljótlega upp úr mánaðarmótum. Við hvetjum alla sem hafa spurningar fyrir hann að endilega að kíkja við á opnunartíma og spjalla við hann.

Erum með laus æfingarými fyrir hljómsveitir og staka trommara. Ekki hika við að hringja í síma 8988080, 8243001, 8243002 eða senda mail á hellirinn@tonaslod.is

Posted in TÞM | Engin Ummæli »

Hljómsveitar síðurnar

miðvikudagur, júlí 14th, 2010

Ég er búinn að vera að vinna í “hljómsveitar” síðunni og nú eru komnar undir-síður fyrir 6 hljómsveitir… Ég hef ennþá ekki fengið neinar upplýsingar í tölvupósti frá hljómsveitum, þannig að upplýsingarnar hef ég aflað mér með því að vafra um veraldarvefinn… facebook, myspace etc… Það er fjandi tímafrekt og því væri gaman ef þið (böndin) gætuð tekið þetta saman og sent mér (birkir@birkir.is).

Síðurnar sem eru komnar ættu að gefa ykkur góða hugmynd um efnið sem hægt er að hafa á svona hljómsveitar-síðu…

En annars eru þetta mínar hugmyndir um upplýsingar frá hverri hljómsveit:

Nafn Hljómsveitar
Logo – 100px á breidd gegnsæ PNG mynd… eða bara eitthvað nothæft sem ég get photoshoppað
Mynd – “Profile” mynd af hljómsveitinni
“Tagline” (Skáletrað undir nafn hljómsveitarinnar)
Genre / Tegund tónlistar
Útgáfufyrirtæki
Hljómsveitarskipan
Hlekkir
Útgefið Efni
Contact Info, E-mail/Nafn/Símanúmer
Biography
Fjölmiðlaumfjöllun, plötudómur etc…
1x – 2x lög – mp3
Video-hlekkur

Endilega takið þetta saman og sendið mér… e-mail: birkir@birkir.is, ef það eru einhverjar spurningar getið þið commentað við þessa færslu eða sent mail :-)

Kveðja Birkir

Posted in TÞM | 1 Ummæli »