Færslur úr ‘TÞM’

Borgarstjóri bjargar TÞM

föstudagur, júlí 9th, 2010

Fréttablaðið 9. júlí

Fréttir af fólki

Jón Gnarr - Borgarstjóri

Jón Gnarr - Borgarstjóri

Fréttablaðið hefur flutt fréttir af fjárhagsvandræðum Tónlistarþróunarmiðstöðvarinnar (TÞM) úti á Granda, en um 200 ungir tónlistarmenn stunda þar æfingar.

Til stóð að TÞM þyrfti að hætta starfsemi þar til í gær þegar borgarráð samþykkti 6 milljóna styrk til að greiða eftirstöðvar húsaleigu. Jón Gnarr borgarstjóri lagði tillöguna fram sjálfur og hefur vafalaust glatt Danna Pollock og félaga sem hafa lagt miklu vinnu og fjármuni í starfsemi TÞM síðustu ár.

Styrkur tryggir starfsemi

Morgunblaðið 9. júlí – Tónlistarmiðstöð fær fé fram til áramóta

Borgarráð samþykkti í gær að styrkja Tónlistarþróunarmiðstöð um sex milljónir króna í því skyni að tryggja áframhaldandi rekstur miðstöðvarinnar út árið.
Diljá Ámundadóttir, formaður ÍTR, segir þennan styrk fara upp í leigu sem TÞM skuldar, ,,þetta á að duga til þess að ganga frá því samkomulagi sem hefur verið gert við eigandann og allir eru sáttir.”
Aðspurð hvort þetta sé næg fjárhæð fyrir starfsemina út árið segir Diljá að starfsemin sé í góðum málum fram að áramótum en þá rennur samningur við eigandann út. ,,Þá ætlum við að taka þessi mál upp á annað stig.”

Posted in TÞM | Engin Ummæli »

Jákvæðar bylgjur í átt að TÞM

mánudagur, júlí 5th, 2010

Fréttablaðið 5. júlí

Unnið í málinu – TÞM átti að loka 1. júlí, en starfsemin er ennþá í gangi og Danni Pollock vonast til að málið leysist á næstu vikum.

Fréttablaðið - 5. júlí

Fréttablaðið - 5. júlí

„Við erum ennþá á staðnum,” segir Danni Pollock, forsprakki tónlistarþróunarmiðstöðvarinnar (TÞM) úti á Granda.

Eins og Fréttablaðið greindi frá á dögunum þá stóð til að loka TÞM 1. júlí ef hún næði ekki að fjármagna húsaleigu ársins. 12 milljónir kostar að leigja húsnæði TÞM úti á Granda á ári og Reykjavíkurborg greiðir helminginn af því. Landsbankinn styrkti starfsemina um hinar sex milljónirnar áður en bankinn féll í október árið 2008, en nú er svo komið að bæði sýslumaður og síðar héraðsdómur hafa úrskurðað að starfsemin verði borin út í sumar. „Félagsmenn hafa byggt TÞM upp frá 2002 og heildarupphæð sem hefur verið lögð í starfsemina er í kringum 140 milljónir,” sagði Danni í Fréttablaðinu í júní. „Um 90 milljónir eru beint frá krökkunum sjálfum. Borgin er að reyna að spara sex milljónir með því að henda 140 milljónum.”

Danni segir fólk frá ÍTR hafa spjallað við sig og að vilji sé fyrir að leysa málið á farsælan hátt. „Það eru jákvæðar bylgjur í okkar átt,” segir Danni sem býst við að meira komi í ljós á næstu vikum. – afb

Smelltu hér til að lesa greinina á visir.is

Posted in TÞM | Engin Ummæli »

Dagskráin í Dag

laugardagur, júní 19th, 2010

Húsið er opið og grillið er heitt fyrir utan… mætið og sýnið stuðning! :)

Tónleikarnir hafa verið færðir inn í húsið og munu hljómsveitirnar koma fram í þessari röð:

Feldberg 17:00
Nolo 17:30
Elín ey 18:00
Sudden weather change 18:30
Móri 19:00
Þórir 19:30
Marlon og Beatur 20:00
Futuregrapher 20:30
Biogen 21:00
Quadruplos 22:00
Dark harvest 22:30
Momentum 23:00

Posted in TÞM | Engin Ummæli »

Baráttu-Mótmælatónleikar

fimmtudagur, júní 17th, 2010

Baráttu-tónleikar á Sódóma kl: 22:00 – 03:00
Föstudagurinn 18. júní – 20 ára aldurstakmark – 1.000,- kr

DJ Vector – Sykur
Quadruplos – Gus Gus

Baráttu-tónleikar í TÞM (út á Granda)
Hólmaslóð 2 kl: 17:00 – 22:00
Laugardagurinn 19. júní – Ókeypis aðgangur – ekkert aldurstakmark
Opið hús ;)

Grill veisla, söluborð, tónlist etc.

Fram koma:
Feldberg  Lay Low  Legend Futuregrapher
Biogen  Quadruplos  Momentum  Dark Harvest
Nolo  Marlon Pollock og Beatur  Mori  DLXATX

Posted in TÞM | Engin Ummæli »

Opinbert bréf til Hljómsveita

fimmtudagur, júní 17th, 2010

Nú er komið að því að berjast fyrir því sem við stöndum fyrir og okkur er kært. Eins og við flest í bransanum vitum er Tónlistarþróumarmiðstöðin í endalausri baráttu við það eina að halda lífi. Er ekki kominn tími til að segja hingað og ekki lengra? Við eigum rétt á því, eins og öll önnur lönd í kringum okkur, að hafa miðstöð sem þessa. Borgin styrkir íþróttafélög með hundruðum milljóna á ári en telur sig ekki eiga aur fyrir tónlistafólkið. Þetta tel ég vera misréttindi og ekkert annað!

Þannig að félagsmenn TÞM, hvetjið alla til að mæta á mótmælatónleika laugardaginn 19. Júni þar sem ótalmargir tónlistarmenn munu koma fram og berjast með okkur. Tónleikarnir verða á bílastæðinu fyrir framan TÞM við Hólmaslóð 2 og standa frá 15:00 – 22:00. Látið orðið ganga og komið með sem flesta með ykkur. Við erum að tala um réttindin okkar til að skapa og vera til!

Posted in TÞM | Engin Ummæli »

200 ungir tónlistarmenn á götuna í júlí ef TÞM lokar

laugardagur, júní 12th, 2010

Fréttablaðið 12. júní

Daniel Pollock: “Borgin styrki TÞM eins og aðrar tómstundir”

Fréttablaðið 12. júní

Fréttablaðið 12. júní

„Við gerðum allt rétt, en erum samt í djúpum skít,” segir Danni Pollock, forsprakki TÞM.

Tónlistarþróunarmiðstöðinni (TÞM) verður lokað 1. júlí ef hún nær ekki að fjármagna húsaleigu ársins. 12 milljónir kostar að leigja húsnæði TÞM úti á Granda á ári og Reykjavíkurborg greiðir helminginn af því.

Landsbankinn styrkti starfsemina um hinar sex milljónirnar áður en bankinn féll í október árið 2008, en nú er svo komið að bæði sýslumaður og síðar héraðsdómur hafa úrskurðað að starfsemin verður borin út í sumar.

„Félagsmenn hafa byggt TÞM upp frá 2002 og heildarupphæð sem hefur verið lögð í starfsemina er í kringum 140 milljónir,” segir Danni. „Um 90 milljónir eru beint frá krökkunum sjálfum. Borgin er að reyna að spara sex milljónir með því að henda 140 milljónum.”

Danni furðar sig á því að þurfa styrki frá einkaaðilum til að reka TÞM, enda sé peningum dælt í íþróttir og aðrar tómstundir. Þá bendir hann á að hin Norðurlöndin verji háum fjárhæðum í starfsemi á borð við þessa. „Það er einfaldlega vegna þess að þau skilja þetta,” segir hann. „TÞM hefur mikið forvarnargildi og er mikil bót fyrir samfélagið.”

Danni vill fá Reykjavík inn í reksturinn af fullum krafti og að borgin semji við eigendur hússins. Nýr meirihluti Besta flokksins og Samfylkingarinnar tekur við stjórnartaumum í Reykjavík á þriðjudag og því getur ný borgarstjórn ekki tekið afstöðu til málsins fyrr en þá.
Einar Örn Benediktsson, borgarfulltrúi Besta flokksins, segist þó alltaf hafa haldið með TÞM.

„Ég hef stutt TÞM í gegnum árin,” segir hann. „Ég og Danni höfum oft talað um TÞM. Sem dæmi þá æfði Björk fyrir Volta-túrinn þarna inni þannig að þetta húsnæði er alveg bráðnauðsynlegt.Í stuttu máli, þá er æskilegt að TÞM haldi lífi.”

Smelltu hér til að lesa greinina á visir.is

Posted in TÞM | Engin Ummæli »