Borgarstjóri bjargar TÞM
9. júlí, 2010
Fréttablaðið 9. júlí
Fréttir af fólki
Fréttablaðið hefur flutt fréttir af fjárhagsvandræðum Tónlistarþróunarmiðstöðvarinnar (TÞM) úti á Granda, en um 200 ungir tónlistarmenn stunda þar æfingar.
Til stóð að TÞM þyrfti að hætta starfsemi þar til í gær þegar borgarráð samþykkti 6 milljóna styrk til að greiða eftirstöðvar húsaleigu. Jón Gnarr borgarstjóri lagði tillöguna fram sjálfur og hefur vafalaust glatt Danna Pollock og félaga sem hafa lagt miklu vinnu og fjármuni í starfsemi TÞM síðustu ár.
Styrkur tryggir starfsemi
Morgunblaðið 9. júlí – Tónlistarmiðstöð fær fé fram til áramóta
Borgarráð samþykkti í gær að styrkja Tónlistarþróunarmiðstöð um sex milljónir króna í því skyni að tryggja áframhaldandi rekstur miðstöðvarinnar út árið.
Diljá Ámundadóttir, formaður ÍTR, segir þennan styrk fara upp í leigu sem TÞM skuldar, ,,þetta á að duga til þess að ganga frá því samkomulagi sem hefur verið gert við eigandann og allir eru sáttir.”
Aðspurð hvort þetta sé næg fjárhæð fyrir starfsemina út árið segir Diljá að starfsemin sé í góðum málum fram að áramótum en þá rennur samningur við eigandann út. ,,Þá ætlum við að taka þessi mál upp á annað stig.”



