Hljómsveitar síðurnar

14. júlí, 2010

Ég er búinn að vera að vinna í “hljómsveitar” síðunni og nú eru komnar undir-síður fyrir 6 hljómsveitir… Ég hef ennþá ekki fengið neinar upplýsingar í tölvupósti frá hljómsveitum, þannig að upplýsingarnar hef ég aflað mér með því að vafra um veraldarvefinn… facebook, myspace etc… Það er fjandi tímafrekt og því væri gaman ef þið (böndin) gætuð tekið þetta saman og sent mér (birkir@birkir.is).

Síðurnar sem eru komnar ættu að gefa ykkur góða hugmynd um efnið sem hægt er að hafa á svona hljómsveitar-síðu…

En annars eru þetta mínar hugmyndir um upplýsingar frá hverri hljómsveit:

Nafn Hljómsveitar
Logo – 100px á breidd gegnsæ PNG mynd… eða bara eitthvað nothæft sem ég get photoshoppað
Mynd – “Profile” mynd af hljómsveitinni
“Tagline” (Skáletrað undir nafn hljómsveitarinnar)
Genre / Tegund tónlistar
Útgáfufyrirtæki
Hljómsveitarskipan
Hlekkir
Útgefið Efni
Contact Info, E-mail/Nafn/Símanúmer
Biography
Fjölmiðlaumfjöllun, plötudómur etc…
1x – 2x lög – mp3
Video-hlekkur

Endilega takið þetta saman og sendið mér… e-mail: birkir@birkir.is, ef það eru einhverjar spurningar getið þið commentað við þessa færslu eða sent mail :-)

Kveðja Birkir

Ein Ummæli við “Hljómsveitar síðurnar”

  1. Birkir:

    14. júlí, 2010 kl. 3.25

    Þær hljómsveitir sem ég er þegar búinn að gera síðu fyrir mega endilega senda mér póst ef það er eitthvað sem þið viljið að ég breyti.

Þín Skoðun