Opinbert bréf til Hljómsveita
17. júní, 2010
Nú er komið að því að berjast fyrir því sem við stöndum fyrir og okkur er kært. Eins og við flest í bransanum vitum er Tónlistarþróumarmiðstöðin í endalausri baráttu við það eina að halda lífi. Er ekki kominn tími til að segja hingað og ekki lengra? Við eigum rétt á því, eins og öll önnur lönd í kringum okkur, að hafa miðstöð sem þessa. Borgin styrkir íþróttafélög með hundruðum milljóna á ári en telur sig ekki eiga aur fyrir tónlistafólkið. Þetta tel ég vera misréttindi og ekkert annað!
Þannig að félagsmenn TÞM, hvetjið alla til að mæta á mótmælatónleika laugardaginn 19. Júni þar sem ótalmargir tónlistarmenn munu koma fram og berjast með okkur. Tónleikarnir verða á bílastæðinu fyrir framan TÞM við Hólmaslóð 2 og standa frá 15:00 – 22:00. Látið orðið ganga og komið með sem flesta með ykkur. Við erum að tala um réttindin okkar til að skapa og vera til!


